Veislur
Ógleymanleg veisla í dulúðlegu umhverfi
Einn stærsti og glæsilegasti salur landsins
LAVA veitingastaðurinn er byggður inn í hraunið sem umlykur Bláa Lónið. Einn veggur staðarins er náttúrulegur steinveggur en hinir eru háir glerveggir með útsýni yfir Bláa Lónið. Veitingastaðnum fylgja fjölmargir möguleikar. Veitingastaðurinn tekur yfir 300 manns í sitjandi borðhald og yfir 600 manns í standandi veislu.
"Það voru allir sammála um að salurinn hafi verið meiriháttar, maturinn alveg frábær og þjónustan góð. Ég hef aldrei heyrt eins marga hrósa mat á árshátíð hjá okkur áður! Tek sjálf undir með þeim.."
- Þyrí aðstoðarmaður framkvæmdastjóra Deloitte, 350 manns
„Þetta tókst virkilega vel, maturinn var frábær og þið eigið hrós skilið hvað vel gekk að þjónusta allan þennan fjölda."
- Guðrún Valdís hjá Marel, 500 manns
Fordrykkur á barnum eða þaki LAVA með tilkomumiklu útsýni
Á annari hæð með útsýni yfir salinn er LAVA bar þar sem gestir geta slakað á ýmist fyrir eða eftir mat, einnig er LAVA bar tilvalin fyrir minni hópa sem vilja lyfta sér upp og vera út af fyrir sig. Á þaki LAVA er útsýnispallur þar sem gestir geta virt fyrir sér Bláa Lónið og umhverfi þess.
Skapaðu stemninguna
Glæsilegur veislusalur LAVA býður uppá frábæra möguleika til að skapa réttu stemminguna fyrir veisluna. Salurinn er öllum tækjum búinn og býður upp á fjölbreytilega lýsingu. Einnig má skipta salnum niður í tvo eða þrjá hluta allt eftir gestafjölda. Þykkar gardínur, rauður dregill og tveir stórir skjávarpar eru í salnum sem býður uppá ýmsa möguleika með myndir og myndbönd.

Láttu okkur aðstoða við undirbúning veislunnar, til að mynda varðandi sérstakar skreytingar, þema, tónlist eða akstur til og frá LAVA.
Eldborg er tilvalinn staður til veisluhalda af öllum stærðum.
Í Eldborg eru þrír salir sem sameina má í einn sal sem rúmar allt að 400 gesti. Meira um Eldborg.
Fyrir frekari upplýsingar:
- hringdu í síma 420 8800
- eða sendu tölvupóst á sales@bluelagoon.is
Við svörum öllum fyrirspurnum eins fljótt og auðið er.