Fréttir

Expo 2010

7. febrúar 2010

Bláa Lónið mun taka þátt í heimssýningunni, Expo 2010, sem fram fer í Sjanghæ síðar á þessu ári. Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins hf., og Össur Skarphéðinsson, Utanríkisráðherra Íslands, undirrituðu samstarfssamning vegna sýningarinnar föstudaginn 5. febrúar. Við sama tækifæri var sýningarskáli Íslands sýndur þátttakendum og fjölmiðlum. Hugmyndin er liggur að baki íslensku sýningunni felst í að færa gesti sýningarinnar til Íslands. Stuttmynd er varpað á fjóra veggi og loft skálans og kynnast gestir því landi og þjóð á myndrænan og áhrifamikinn hátt. Myndefni frá Bláa Lóninu er hluti sýningarinnar eins og sjá má á myndinni hér að neðan.


Til baka