Bláa Lónið
er heillandi kostur
Fallegt umhverfi Bláa Lónsins er glæsileg umgjörð fyrir margs konar viðburði. Fáir staðir geta boðið allt í senn - góða aðstöðu, fyrsta flokks veitingar og afþreyinguna sem felst í sjálfum baðstaðnum. Það hefur gefist afar vel fyrir hópa og vinnustaði að ljúka árangursríkum degi með endurnærandi og slakandi upplifun í Bláa Lóninu.
Starfsfólk Bláa Lónsins hefur mikla reynslu við að skipuleggja viðburði af öllum stærðum og gerðum. Í boði eru salir og herbergi af ýmsum stærðum og gerðum, allt frá litlum fundarherbergjum (8-12 manns) til veitingasalar LAVA sem getur tekið á móti allt að 1.000 manns.
-
LAVA Veitingastaður
LAVA Restaurant is Blue Lagoon's largest hall, with a seating capacity for up to 500 guests and standing capacity for up to 1.000 guests. LAVA veitingastaðurinn er tilvalinn fyrir fundarhópa að snæða saman að fundi loknum. Salurinn tekur einnig allt að 1.000 manns í standandi samkvæmum.
Fundarherbergi
Fundarsalurinn í Bláa Lóninu hefur einstakt útsýni yfir Bláa Lónið og nánasta umhverfi. Í salnum er hægt að koma á fundi fyrir allt að 90 þátttakendum. S
-
Eldborg
Eldborg er staðsett í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð frá Bláa Lóninu. Þar er að finna þrjá sali og herbergi sem hafa fullkominn búnað til funda- og ráðstefnuhalds.
Stjórnarherbergi
Stjórnarherbergið í Bláa Lóninu er einnig staðsett á annarri hæð og rúmar allt að 12 gesti. Fundargestir hafa aðgang að svölum með fallegu útsýni yfir lónið.
Salir og Herbergi
Í Bláa Lóninu gefst tækifæri til að að sameina fundi eða viðburði annarsvegar og slökun hins vegar. Þessi blanda hefur gefið góða raun og veitir gestum aukna ánægju. Salir og herbergi Bláa Lónsins henta fyrir ólíka hópa, allt frá fámennum fundum yfir í mannfögnuði þar sem gestir telja hundruðum.
Lesa Meira



