Nýtt Volcano Scrub "Eldfjallahreinsir" og Algae Mask "Þörungamaski"
30. júlí 2010
Volcano Scrub „Eldfjallahreinsir“ og Algae Mask „þörungamaski“ eru á meðal nýjunga sem bjóðast nú baðgestum Bláa Lónsins.
Volcano Scrub inniheldur fínmalað vikur úr hrauninu sem umlykur Bláa Lónið. Vikurinn hreinsar og slípar húðina og veitir húðinni fallegt og heilbrigt yfirbragð.
Algae Mask er einstakur maski sem inniheldur Blue Lagoon þörunga, en rannsóknir sýna að þörungarnir draga úr öldrun húðarinnar með því að draga úr niðurbroti á kollageni og örva kollagen myndun húðarinnar.
Vörurnar eru afhentar frosnar og látnar þiðna í lófanum áður en þær eru bornar á húðina. Eldfjallahreinsirinn og þörungamaskinn eru eingöngu til sölu á nýjum bar sem staðsettur er ofan í Bláa Lóninu.
.jpg)