Um fyrirtækið

Íslendingar njóta sumarsins í Bláa Lóninu

10. ágúst 2010

Heimsóknum íslenskra gesta Bláa Lónsins fjölgaði um 26% í júlí borið saman við sama mánuð á sl. ári.

Fjölgun innlendra gesta var meiri  í júlí en aðra mánuði ársins, en það sem af er árs hefur innlendum gestum fjölgað um 14%.

Nýr bar sem staðsettur er í Bláa Lóninu hefur vakið mikla ánægju meðal gesta. Þar eru fersk orkuskot, Blue Lagoon eldfjallahreinsir og þörungamaski hluti af vöruframboði.